Um okkur

Hamar var stofnað árið 1998 og hefur frá fyrstu tíð lagt áherslu á þjónustu á sviði málmtækniiðnaðar og almennri viðhaldsþjónustu til fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi. Félagið hefur nú sameinað reksturinn við félögin Deilir tækniþjónusta ehf, NDT ehf og Vélar ehf undir nafni HD. Fyrirtækið getur nú boðið breiðara vöruúrval og þjónustu en nokkru sinni fyrr. Má í því sambandi nefna tæknilegar ástandsgreiningar véla og sívöktun vélbúnaðar, hönnun, framleiðsla og þjónusta dælu-og lagnakerfa, viðhaldi á jarðgufutúrbínum og rafölum orkuvera, innflutningi á vél- og tæknibúnaði, uppsetningar, varahlutaöflun og aðra þjónustu.

Hver starfsstöð félagsins hefur tiltekna sérhæfingu í þjónustuframboði og jafnframt er tækjakostur hverrar starfsstöðvar sérsniðinn að þeirri þjónustu sem boðin er. Félagið hefur markað þá stefnu að hagnýta ávallt nýjustu tækni sem í boði er hverju sinni og má í því sambandi nefna 3D skönnunartækni til ástandsgreininga og endurhönnunar á vélbúnaði, sérhæfðan hugbúnað til úrvinnslu og varðveislu mæligagna, hátæknibúnað við sprunguleit og titringsmælingar á búnaði sem er í rekstri og sérstakan málmskanna sem nýttur er til efnisgreininga málma og ákvarðana um val á efnum og suðuferlum. Jafnframt hefur félagið CNC hönnun og framleiðslutæki til að skera, renna og fræsa hráefnin og fæst með þessu hámarks nákvæmni í viðgerðum og framleiðslu vélahluta.

Viðskiptavini okkar má finna í öllum helstu iðnaðargeirum Íslands sem eru stóriðnaður, sjávarútvegur, virkjanir, veitufyrirtæki, matvælaiðnaður og fiskeldi. Hjá félaginu starfa ríflega tvö hundruð manns á sex starfsstöðvum vítt og breytt um landið. Starfsfólk okkar hefur víðtæka reynslu og breiða menntun á véla- og tæknisviði sem gerir okkur kleift að hámarka virði veittrar þjónustu. Starfsfólk félagsins hefur hlotið sértæka þjálfun í viðhaldi vélbúnaðar sem hámarkar uppitíma iðnveranna sem við þjónustum. Sérhver stöðvun vegna viðhalds iðnveranna er vandlega skipulögð í samræmi við aðstæður iðnversins, úrval af sérhæfðu þjónustufólki og tiltæki varahluta sem þarf til verksins er tryggð. Með þessu móti lágmörkum við stoppin og aukum fyrirsjáanleika í rekstri iðnvera viðskiptavina okkar.

HD er með ISO 9001-2015 vottað gæðakerfi ásamt jafnlaunavottun. Með starfsmannastefnu sinni, leggur HD mikla áherslu á að auka menntun og þekkingu starfsfólksins, tryggja jafnrétti launa og skapa jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Gildin  í sameinuðu félagi eru öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska. Þau varða leið okkar í daglegum rekstri og stjórnun gagnvart starfsfólki og í Þjónustu viðskiptavina okkar.

Markmið félagsins er að við verðum fyrsta val viðskiptavina sem þjónustuaðili í vélbúnaði, tækniþjónustu og stálsmíði á landsvísu.

Fyrir hönd HD ehf.  Árni Rafn Gíslason Forstjóri

Að hverju ertu að leita?

HD notar vefkökur m.a. til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.